sýning í Listasal Mosfellsbæjar
Verkin á sýningunni eru unnin útfrá upplifun íslenskra kvenna á eigin líkama, fallegar mjúkar fellingar sem myndast við þétt grip eða smá klípu sem er ýmist framkvæmt í ergelsi eða losta.
Ég hef notast við nýjustu tækni þar sem MMS og internetið færa mér myndefnið, ljósmyndir sem vinkonur mínar hafa tekið af sjálfum sér og sínum handföngum. Takk fyrir stelpur!

Beta Gagga sýnir í Grafíksafni Íslands,
sal Íslenskrar Grafíkur
Laugardaginn 21. febrúar kl.16:00 opna ég sýningu sína Lífsgjöf í Grafíksafni Íslands, sal Íslenskrar Grafíkur, Hafnarhúsinu (hafnarmegin) Tryggvagötu 17. Þetta er þriðja einkasýning mín en einnig hef ég tekið þátt í fjölda samsýninga.
Um verk mín:
Viðfangsefnið mitt hefur alltaf verið mínar tilfinningar, mínar upplifanir sem kona,
sem ástkona, sem móðir, sem manneskja. Til að tjá það hvernig mér líður í eigin skinni hef ég iðulega hlutgert þetta í myndum af sjálfri mér eða minni upplifun af sjálfri mér. Þetta er mín naflaskoðun.
Lífsgjöf mín og annarra kvenna er viðfangsefni sýningarinnar. Lífsgjöfina tel ég vera naflann en hann er ör sem allar manneskjur bera eftir að klippt hefur verið á, eftir alla næringu í móðurkviði, lífsgjöf. Geirvörtur tel ég einnig vera lífsgjafa, þó þær séu líka meira en það. Þær eru samkvæmt fræðiritum “útistandandi hluti á brjósti sem gefur frá sér vökva (brjóstamjólk) sem hefur þann tilgang að næra barn.” Lífsgjöf.
Sýningin samanstendur af málverkum sem unnin eru með blandaðri tækni. Myndefnið er eins og sagði hér á undan, naflar og geirvörtur, og eru myndirnar málaðar eftir lifandi fyrirmyndum, lífsgjöfum.
Sýningin stendur til 8. mars 2009
og er opin fimmtudag til sunnudags frá kl. 14:00-18:00
Allir hjartanlega velkomnir!
*´¨)
¸.•´¸.•*´¨) ¸.•*¨)
(¸.•´ (¸.•´ Beta Gagga
Byrjuð að mála!!

Ég hef loksins komið mér aftur í gírinn og er byrjuð að mála 2 myndir sem vonandi er bara byrjunin á góðri vinnulotu! Ég hef ekki farið mikið á deild 33b en ætla mér að eiga vinnustefnumót við Möggu á fimmtudagsmorgnum! Svo ef þið eigið leið hjá Skipholtinu á milli 8 og hálf 11 þá endilega kíkið í kaffi!!

ég hef lengi ætlað mér að auka verðgildi þeirra listaverka sem þið eigið í fórnum ykkar eftir mig.
því hef ég nú byrjað að dreifa boðskapnum!
Ég er búin að skrá eitt verk eftir mig í samkeppni á netinu og því verð ég að fá ykkur líka til að breyða út boðskapinn!!!!
Ég er búin að setja 4 verk eftir mig á Artótek Borgarbókasafnsins sem er náttlega algjör snilld. Þegar fólki langar að hafa upprunalega listaverk á veggjum heima hjá sér en á ekki lausafé til að eignast þau, þá getur fólk núna leigt listaverk að eigin vali á Artótekinu og ef að fólki líkar verkin þá getur það eignast þau með lágum mánaðarlegum greiðslum! Sneddí ha!
þá er bara að velja sér tegund listaverks; málverk, skúlptúr o.þ.h. og eða eftir nafni listamannsins!
*´¨)
¸.•´¸.•*´¨) ¸.•*¨)
(¸.•´ (¸.•´ Áfram Beta www.betagagga.tk
Smellið á myndina!
Útburður og Erfidrykkja.
33b er sýningarrými og vinnustofur myndlistarmanna og tónlistarmanna að
Skipholti 33b. Nafnið vísar í húsnúmer, sjúkrahúsdeild, og
starfsmannaleigur. 33b er fyrir aftan hið sívinsæla Bingó í Vinabæ eða
gamla Tónabíó. Og ekki úr vegi að sameina ferð á sýningu við eina
umferð í Bingó því hin árlega sýning vinnustofunnar verður nú um helgina. Tvísýnt var um framtíð deildarinnar og því blásið til erfidrykkju.
Annað kom á daginn og verður upprisan því að erfidrykkju lokinni.
Sýnendur og flytjendur eru:
Pétur Thomsen, Karen Ósk Sigurðardóttir, Arndís Gísladóttir, Sandra María
Sigurðardóttir,Róbert Örn Hjálmtýsson, Viðar Jónsson,
Brynja Emilsdóttir, Þórunn Inga Gísladóttir, Arnar Ingi Hreiðarsson,
Margrét M. Norðdahl og Elísabet Stefánsdóttir.
Hljómsveitin Les Kunt sem einhverjir kannast við úr pönklagasamkeppni
Rásar 2 frumflytur verkið: Amateur Prostitute.
Opnun er á föstudagskvöld frá kl. 20. - 23 og
opið er um helgina, 5. og 6. apríl frá 14 - 17.
Allir eru boðnir einstaklega velkomnir.
kveðja



Vonandi kíkið þið sem flest!
|
Ég er kölluð Beta og er frábær móðir,eiginkona,dóttir,
systir,frænka,vinkona,
myndlistarkona,kennari, hljómsveitarmeðlimur og nágranni! |
 |
Ég kenni nemendum í 7.-10.bekk Gaggó Mos myndlist og skrautskrift.
Vinnustofu gengið mitt heitir Deild 33b og er staðsett í Skipholti 33b.
Einnig er þar staðsett æfingarhúsnæði hljómsveitarinnar minnar Les Kunt, sem er einstök pönkperformans hljómsveit. |
|